Article about portfolio in use in Iceland.
Færnimappan er afrakstur norræns samstarfsverkefnis sem unnið var af aðilum í fullorðinsfræðslu frá Danmörku, Eistlandi, Íslandi og Noregi. Fulltrúi frá Mími-símenntun tók þátt í þessu starfi. Auk þess hefur verið boðið upp á sérstök námskeið í gerð Færnimöppu. Vinna við gerð Færnimöppu er í umsjón náms- og starfsráðgjafa og fær hver einstaklingur aðstoð og ráðgjöf þar sem áherslan er á að aðstoða þá við að draga fram styrkleika sína og færni. Í Færnimöppu skráir hver einstaklingur alla reynslu sína tengda námi, starfi og frístundum og fær leiðsögn við að setja upp eigin ferilskrá.